Nýjustu færslur
Rottur í Reykjavík

Rottur í Reykjavík

Skemmtileg frétt á ruv.is um rottur sem urðu á vegi borgarbúa í Reykjavík á dögunum. Finna má fréttina með því að smella hér. Hefur þú að geyma rottusögu úr Reykjavík? Ef svo er deildu því nú með okkur með því að smella hér.  

Vorið í Austurstræti

Austurstræti Vorið er svo sannarlega komið þegar sólin fer að skína í Austurstrætið og maður heyrir fuglana syngja. Jójó er mættur á svæðið og er farinn að syngja hátt og snjallt. Maður sér fleiri á ferli og ef maður labbar handan við hornið er að glitta í fólk sem situr á Austurvelli og aðra sem...
Dýrðardagar æskunnar í Vogunum

Dýrðardagar æskunnar í Vogunum

Það var draumur hvers barns að alast upp í nýju hverfi. Þar var yfirleitt fullt af öðrum börnum og þannig var það í Vogahverfinu í Reykjavík á 6. og 7. áratug 20. aldar. Þar ægði öllu saman, nýjum húsum, gömlum hermannabröggum, fjósum, svo ekki sé talað um húsagrunnana, slippinn niðri í Keili, hálfbyggðu stórhýsin, móaana...
Sveit í borg

Sveit í borg

Framan af ævinni bjó ég í vesturbænum í Reykjavík og áleit það nafla alheimsins. Þarna var dásamlegt að alast upp og mikill ævintýraheimur fyrir barn. Stutt var að fara niður í fjöruna við Ægissíðu, hin frábæra Vesturbæjarlaug var þarna, menningarstofnanir eins og Háskólabíó og Þjóðminjasafnið voru þar að finna (í þessari röð). Melavöllurinn með skautasvelli...

Náttúra í miðri Reykjavík

Tónlistarlíf og menningarlíf hefur undanfarna áratugi verið mjög blómlegt í Reykjavík. Frá því ég flutti til Reykjavíkur hafa tónleikar ætíð verið ofarlega á dagskránni hjá mér. Café Rosenberg hefur alltaf verið mikið í uppáhaldi, bæði gamli staðurinn sem var staðsettur í Lækjargötu og nýji staðurinn sem er til húsa að Klapparstíg. Ég man að þegar...

Hvít minning úr borginni

Flestar minningar mínar tengdar Reykjavík eru frá unglingsárunum. Á þeim tíma sótti ég vinnu, skóla og skemmtan til borgarinnar, oftast frjáls ferða minna með strætókort upp á vasann. Kaldan og éljasaman dag í janúar 1988, beið ég sem oftar eftir strætó í Lækjargötu. Menntaskólinn sem ég gekk í var tvísetinn á þessum árum sem þýddi...
Gata í Skuggahverfi

Gata í Skuggahverfi

Sem lítil stúlka fór ég nokkrum sinnum að heimsækja frændfólk mitt sem bjó í gömlu virðulegu bárujárnshúsi við Lindargötuna gegnt gamla ríkinu. Flest húsin við götuna voru byggð í kringum aldamót, götumynd heildstæð, yfirbragð heimilislegt og ekki spillti fagurt útsýni til sjávar. Rúmlega tíu árum eftir að ég heimsótti þau síðast á Lindargötuna gerðist ég...
Breiðholt: Where You Kick Cans Or Lampposts

Breiðholt: Where You Kick Cans Or Lampposts

Þessi pistill eftir Gerði Jónsdóttur er tekin af vef The Reykjavík Grapevine. How Reykjavík got to be what it is, part II If you have been wondering whether an old school ghetto can be found in Reykjavík, the answer is ‘sort of.’ What Icelanders refer to as their ‘ghetto’ is more commonly referred to as...
Laugardagarnir á Sóló

Laugardagarnir á Sóló

Amma og afi á Sóló. Þessi örstutta setning vekur upp margar mínar bestu æskuminningar og í hvert sinn sem ég segi þessa setningu eða jafnvel bara hugsa hana færist bros yfir andlit mitt. Þegar ég var barn bjuggu nefnilega amma mín og afi í stóru húsi á Sólvallagötunni og þetta var mitt ævintýraland. Húsið var...

Fyrsti kossinn

Ég ákvað að skrifa stutta endurminningu um fyrsta kossinn minn, sem ég fékk einhverntíman seint á síðustu öld. Ég satt best að segja man ekki hvaða ár þetta var, en ég var í kringum tvítugt, en ég var frekar aftarlega á merinni þegar kom að þessu öllu saman, byrja með stelpu, drekka áfengi og allt...
Sumardagar í Reykjavík

Sumardagar í Reykjavík

Sumardagar í Reykjavík …fyrir einhverjum árum síðan Ég þreytist ekki á að horfa út um gluggann í herbergi mínu. Né heldur úr stofunni ef út í það er farið. Ef ég horfi út um gluggann minn sé ég höfnina. Alls konar vinnusvæði, skip og vinnukalla, reyk og vélar. Ég má ekki fara alla leið yfir...

Kanínur

Litlar kanínur, stórar kanínur, brúnar kanínur, hvítar kanínur, kátar kanínur, margar kanínur. Það er kanínufjör í Öskjuhlíð.
How Reykjavík Got To Be What It Is

How Reykjavík Got To Be What It Is

Þessi pistill eftir Gerði Jónsdóttur er tekin af vef The Reykjavík Grapevine. The fabled area of 101 Reykjavík is a fun place, but there is certainly more to the city. Reykjavík is actually divided into ten districts, with the 101 area (101 is the postal code for the downtown area of Reykjavík) only encompassing five...
Ég sef í rúmi í Reykjavík.

Ég sef í rúmi í Reykjavík.

Reykjavík er á Íslandi.. Ég á heima í Reykjavík..Þar eru margir stigar. Þar eru engin dýr nema hundar og kisur. Ég sef í rúmi, í herbergi sem er í húsi. Í Reykjavík er fullt af bílum og börnum og húfum og fötum. Stundum fer ég í fimleika í Reykjavík..eða í búðir; dótabúðir, matarbúðir, bókabúðir, hjólabúðir...
Barónsstígur: 13. október 2001

Barónsstígur: 13. október 2001

Ég geng niður Barónsstíg. Er mjög neðarlega þannig að réttast væri að segja að ég gengi upp Barónsstíginn. Ég mæti bílum. Geng fram hjá Landsspítalanum. Lít til vinstri og tek eftir stórum hvítum húsum. Þetta geta ekki verið einbýlishús. Þau eru svo stór. Ætli það séu ekki svona þrjár til fjórar íbúðir í húsi. Allavega...