Reykjavík er full af orðum og sögum fólksins sem í henni býr. Í samvinnu við Urb.is vill Bókmenntaborgin Reykjavík fanga þessi orð með því að safna sögum borgarbúa á þennan vef. Þetta geta verið minningar, stemning, ljóð, smásögur eða hugleiðingar – eitt orð eða mörg. Engin frásögn er ómerkileg, við viljum heyra allt! Einnig má senda inn inn myndir, hvort sem um er að ræða teikningar eða ljósmyndir, og texta með.




