Í Reykjavík er að finna mikinn fjölda fallegra, áhugaverðra og sögufrægra trjáa sem plantað var í lok 19. aldar og fram á síðari hluta 20. aldar. Þessi tré hafa mikið gildi fyrir umhverfið og mannfólkið í borginni. Þau hafa ekki einungis skapað borgarbúum fallegra umhverfi og skjól gegn nöprum vindum, heldur eiga þau sér einnig merka sögu, bæði hvað varðar uppruna þeirra, fólkið sem plantaði og hlúði að þeim og staðina sem þau vaxa á. Trjátegundir sem menn hefðu áður talið ómögulegt að rækta á svo norðlægum stöðum hafa skotið rótum í görðum borgarinnar og dafna þar vel í ljósi hlýrra veðurfars og vegna skjólmyndunar bygginga og eldri trjáa.
Tré geta verið merkileg af mörgum ástæðum og verður leitast við að skrá tré sem teljast:
1. Mikilvæg í sögulegu samhengi
2. Óvenjuleg vegna stærðar og umfangs
3. Gömul
4. Sjaldgæfar tegundir
5. Sérstök vegna vaxtarlags o.fl.
6. Eru mikilvægur hluti af umhverfi sínu vegna götumyndar eða hafa sérstaka merkingu fyrir íbúa í nágrenni.
Björk Þorleifsdóttir nemi í umhverfis- og auðlindafræði við Háskóla Íslands vinnur nú að meistaraprófsverkefninu merk tré í Reykjavík þar sem hún fjallar um sögur merkilegra trjáa. Við á urb.is ætlum að hjálpa Björk við söfnunina og fá jafnframt að birta sögur af merkilegum trjám í borginni. Ef þú veist um slík tré og/eða kannt sögur sem tengjast einstökum trjám í Reykjavík deildu því endilega með okkur hér.
Dæmi um sögu á facebook síðu verkefnisins:
Þessi fallegi álmur er við gömlu mjólkurstöðina við Snorrabraut. Sagan segir að álmurinn hafi eitt sinn verið orsök aftanákeyrslu þegar trjáunnendur gleymdu sér eitt augnablik við að dást að honum. Sögunni fylgdi reyndar að áreksturinn hafi ekki síður orðið vegna þess að ökumaður fremri bílsins hafi hægt á sér til að horfa á huggulega fótgangandi konu.





