Á dögunum tókum við hjónaleysin okkur til og gengum Neshringinn með barnavagninn í góða veðrinu. Við höfðum heyrt útundan okkur að þarna á nesinu mætti finna dýrindis náttúrulegt fótabað. Ætlunin var því að staldra þar við og baða fætur okkar. Minnstu munaði að við gengum framhjá þessum stað, hann er í örlitlum felum en hafi maður augun hjá sér og líti vel í kringum sig er ekki erfitt að finna hann. Fótabaðið var unaðslegt og útsýnið yfir borgina ekki af verri endanum!





